Log In

to shop

Karfa

  • BÆKUR & TÍMARIT
  • REKSTUR & RITFÖNG
  • HÚSGÖGN
  • Gjafavara
  • Töskur
  • Föndur og Leikföng
  • Skemmtilegt
  • HAY
  • Opnunartímar
FYRIRTÆKJAÞJÓNUSTA
Valmynd
  • BÆKUR & TÍMARIT
  • REKSTUR & RITFÖNG
  • HÚSGÖGN
  • Gjafavara
  • Töskur
  • Föndur og Leikföng
  • Skemmtilegt
  • HAY
  • Opnunartímar
  • FYRIRTÆKJAÞJÓNUSTA

Innskráning

Nýskráning - Fyrirtæki
Nýskráning -Einstaklingar Gleymt lykilorð?
  1. Allar íslenskar bækur
  2. Vigdís: Kona verður forseti

Vigdís: Kona verður forseti

Sækja mynd
Image description
Price:8.999 ISK
Vörunúmer: JPV355427

Product description

Í október 1950 skrifar tvítug kona, í öngum sínum erlendis, foreldrunum bréf sem hún lýkur með orðunum: „Hvað skyldi sá dagur heita sem ég get orðið ykkur til ofurlítils sóma?“ Þrjátíu árum síðar sver Vigdís Finnbogadóttir embættiseið sem fjórði forseti Íslands og fyrsta konan í veröldinni sem kjörin er þjóðhöfðingi í frjálsum lýðræðislegum kosningum.

Hver er saga þeirrar konu sem heillaði ekki bara landa sína í hlutverki forseta, heldur hálfa heimsbyggðina um leið, með framkomu sinni, hlýju viðmóti og snjöllum orðum? Hér er ítarlega fjallað um uppvöxt hennar og fjölskyldu, áhrifavalda, mótunaröfl og þau áföll sem dundu á Vigdísi áður en hún, einstæð móðir og fráskilin, axlaði það hlutskipti sem þjóðin
kaus hana til. Hvað fól það í sér og hvaða fórnir þurfti að færa? Bókin bregður upp einstæðri og margslunginni mynd af manneskjunni Vigdísi Finnbogadóttur, sorgum hennar og sigrum, þannig að saga hennar verður lesanda bæði nákomin og hugstæð.

Páll Valsson íslenskufræðingur og rithöfundur er þekktur fyrir bók sína, Jónas Hallgrímsson – ævisaga, sem færði honum Íslensku bókmenntaverðlaunin.

Product category

    Íslenskar bækur, Ævisögur - íslenskar
  • Staðsetningar og opnunartímar
  • Skilmálar
  • Hafa samband
  • Vildarklúbbur
  • Um Pennann Eymundsson
  • Verslanir
  • Dreifingarmiðstöð - Verkstæði
  • | Penninn ehf. - Kt. 560109-0670 - Smáratorg 3, 201 Kópavogur - Ísland, Vsknr. 100269 |

540 2000

Skiptiborð

Samband við allar verslanir