HERMAN MILLER - Aeron, A stærð
| Price without discount: | 469.875 ISK |
| Price: | 352.406 ISK |
| You save: | 117.469 ISK (-25%) |
Hönnuður
Product description
Meistaraleg endurhönnun á Aeron skrifborðsstólnum. Aeron var fyrsti skrifborðstóll heims með sæti og bak úr engu nema neti. Stóllinn var byltingarkenndur þegar hann kom fyrst á markað árið 1994 þar sem þetta var í fyrsta sinn sem að sterkt teygjanlegt net var notað í skrifborðsstól. Þessi eiginleiki vakti mikla lukku og seldist stóllinn í milljónum eintaka. Enn þá daginn í dag er Aeron talinn einn af allra bestu skrifborðsstólum sem finnast og er hann mest seldi skrifborðsstóll fyrr og síðar.
Aeron stóllinn heitir Aeron Remastered í dag þar sem búið er að betrumbæta hann og aðlaga að nútímanum. Aeron hefur allar helstu stillingar og er einstaklega þægilegur og endingargóður.
Eiginleikar:
Hæðarstilling.
Fæst í þremur stærðum (A, B og C).
Stillanlegur hryggjar- og mjóhryggsstuðningur.
Samhæfð stilling á setu og baki - fylgir hreyfingum notandans.
Sjálfstæð hallastilling fyrir setu og bak.
Mótstöðustilling fyrir mismunandi þyngd.
Fjölstillanlegir armar.
Val um mjúk eða hörð hjól.
Sérhannað 8Z-net með átta svæðum í setu og baki sem hleypa út líkamshita.
Fæst með hækkun og fóthring.
Efnið í stólinn er 39% endurunnið og stóllinn sjálfur 91% endurvinnanlegur (flokkur A).
Burðarþol 136 kg. (A) og 159 kg. (B og C).
12 ára ábyrgð (5 ár á neti, hæðarpumpu og armpúðum).
Uppgefið verð miðast við stól á mynd nr. 1.
- Files:Stærð og þyngd (32.91 KB)
- Útgáfuár : 2016





