Afturgangan
| Price: | 3.699 ISK |
Penninn Eymundsson
- Austurstræti 18
- Kringlan Suður
- Keflavík
Höfundur
Product description
Þegar Harry Hole flytur til Hong Kong telur hann
sig lausan við byrðar fortíðarinnar fyrir fullt
og allt. En þá fær hann fregnir af því að Oleg,
sonur fyrrverandi unnustu hans, hafi verið
handtekinn, sakaður um morð.
Harry neitar að
trúa að Oleg sé sekur og snýr aftur heim til
Noregs. Hann dregst þegar inn í miskunnarlausa
undirheima Oslóarborgar, þar sem nýtt og
háskalegt eiturlyf er komið í umferð. Lögreglan
vill ekki hleypa Harry nálægt rannsókn málsins
en þegar honum tekst að lauma sér inn í
fangelsið og ná tali af Oleg sannfærist hann um
að morðið tengist fíkniefnaheiminum og nýja
efninu. Hann neyðist til að takast á við eigin
fortíð og horfast í augu við sannleikann um Oleg
og sjálfan sig.
Bækur Jo Nesbø um
rannsóknarlögreglumanninn Harry Hole hafa farið
sigurför um heiminn og komið út í fjölda landa.
Þetta er áttunda bókin í bókaflokknum um Harry
Hole sem kemur út á íslensku.
Product category
-
Íslenskar bækur, Skáldverk þýdd - kiljur
- Form: Kilja
- Útgáfuár: 2015
- Útgefandi: Forlagið
- Blaðsíðufjöldi: 520
