Skuggasund Kilja ný
| Price: | 2.999 ISK |
Penninn Eymundsson
- Austurstræti 18
- Kringlan Suður
- Akureyri
- Smáralind
Höfundur
Product description
Einstæðingur finnst látinn í íbúð sinni í
Reykjavík. Á skrifborði hans liggja
blaðaúrklippur frá stríðsárunum þar sem sagt er
frá óhugnanlegu morði: stúlka fannst kyrkt bak
við Þjóðleikhúsið sem var á þeim tíma birgðastöð
fyrir herinn. Lögreglumaður kominn á eftirlaun
fréttir af málinu og forvitni hans vaknar. Hann
hefur áður heyrt um stúlkuna Í en hvers vegna
skyldi nokkur maður geyma fregnir af dauða
hennar?
Skuggasund er sautjánda bók Arnaldar
Indriðasonar. Hér fetar hann ótroðnar slóðir í
fylgd nýrra sögupersóna; annars vegar í
samtímanum og hins vegar á árum síðari
heimsstyrjaldar. Arnaldur hefur um langt skeið
notið gríðarlegrar hylli lesenda og gagnrýnenda
heima og erlendis. Bækur hans hafa verið þýddar
á tugi tungumála, selst í milljónum eintaka og
aflað höfundinum verðlauna og virðingar víða um
lönd.
Product category
-
Íslenskar bækur, Skáldverk íslensk - kiljur
- Form: Kilja
- Útgáfuár: 2014
- Útgefandi: Forlagið
- Blaðsíðufjöldi: 316

