Vetrarhörkur
| Price: | 4.999 ISK |
Penninn Eymundsson
- Austurstræti 18
- Kringlan Suður
- Hafnarfjörður
- Skólavörðustígur
- Smáralind
Höfundur
Product description
Án þess að átta sig á því hafði hún verið farin
að leggja drög að nýju lífi. Og þrátt fyrir
óttann um Braga hafði hún upplifað sig örugga.
En það öryggi var nú fokið út í hafsauga. Þær
voru komnar. Þær voru hér.
Enginn veit hversu
margir lifðu af geimveruárásina sem gerð var á
landið. Bergljót og pabbi hennar eru enn í
Vestmannaeyjum og nú hefur heyrst lífsmark frá
Braga bróður hennar ofan af landi. Spurningarnar
eru óteljandi: Hvað vilja geimverurnar? Er hægt
að sigrast á þeim? Verður lífið einhvern tíma
venjulegt á ný?
Vetrarhörkur er seinni hluti
sögunnar sem Hildur Knútsdóttir hóf í
Vetrarfríi, æsispennandi bók sem naut mikilla
vinsælda, var tilnefnd til Íslensku
bókmenntaverðlaunanna og Barnabókaverðlauna
Reykjavíkur, og hlaut Fjöruverðlaunin Í
bókmenntaverðlaun kvenna.
Product category
-
Íslenskar bækur, Ungmennabækur
- Form: Innbundin
- Útgáfuár: 2016
- Útgefandi: Forlagið
- Blaðsíðufjöldi: 282
