Draumsverð Þriggja heima saga 2
| Price: | 4.667 ISK |
Penninn Eymundsson
- Austurstræti 18
- Hafnarfjörður
Höfundur
Product description
Innsiglin sjö sem vitringarnir skópu fyrir nærri
þúsund árum eru að rofna. Skuggarnir geta því
aftur snert heimana þrjá og eftir að manngálkn
þeirra réðust á þorpið Vébakka hafa Ragnar,
Breki og Sirja verið á flótta. Leið þeirra
liggur nú suður á bóginn, inn í Yglumýri, þar
sem nornin Heiðvíg Ormadróttin er sögð dvelja.
Með aðstoð Nanúks, dularfulla veiðimannsins úr
norðri, verða krakkarnir að bjóða dauðanum
birginn í myrkviðum mýrarinnar. Þar bíða þeirra
ógurleg skrímsli og Sirja heyrir gamalkunnan en
þó framandi söng.
Draumsverð er önnur bókin í
Þriggja heima sögu, æsispennandi sagnaflokki þar
sem blóðgaldrar, falin leyndarmál og gleymdar
óvættir ógna heimunum öllum. Fyrsta bókin,
Hrafnsauga, hlaut gríðargóðar viðtökur lesenda á
öllum aldri, hreppti Íslensku
barnabókaverðlaunin og var valin unglingabók
ársins af bóksölum.
Product category
-
Íslenskar bækur, Ungmennabækur
- Form: Innbundin
- Útgáfuár: 2013
- Útgefandi: Forlagið
- Blaðsíðufjöldi: 555

