Keisaramörgæsir
| Price: | 3.999 ISK |
Vörunúmer: BJ THH
Hvar er varan fáanleg
Penninn Eymundsson
- Austurstræti 18
Höfundur
Product description
Það eru andlit á glugga en meindýraeyðirinn vill ekkert aðhafast. Náhvalurinn er útdauður, þetta heilaga finnst hvorki á bak við bækurnar né undir eldhúsvaskinum og á börum í Reykjavík er boðið upp á Vatnajökul í viskíið.
Í sagnaheimi Þórdísar Helgadóttur rekast á kunnuglegir hlutir og furður en þegar betur er að gáð reynast sumar furðurnar líka kunnuglegar. Hér er teflt saman fantasíu og raunsæi á heillandi og kraftmikinn hátt.
Þórdís Helgadóttir er einn efnilegasti höfundur landsins. Hún hefur áður vakið athygli fyrir smásögur og ljóð, en Keisaramörgæsir er fyrsta bók hennar.
Product category
-
Íslenskar bækur, Skáldverk íslensk - innbundin
- Form: Innbundin
- Útgáfuár: 2018
- Útgefandi: Bjartur Veröld
