Log In

to shop

Karfa

  • BÆKUR & TÍMARIT
  • REKSTUR & RITFÖNG
  • HÚSGÖGN
  • Gjafavara
  • Töskur
  • Föndur og Leikföng
  • Skemmtilegt
  • HAY
  • Opnunartímar
FYRIRTÆKJAÞJÓNUSTA
Valmynd
  • BÆKUR & TÍMARIT
  • REKSTUR & RITFÖNG
  • HÚSGÖGN
  • Gjafavara
  • Töskur
  • Föndur og Leikföng
  • Skemmtilegt
  • HAY
  • Opnunartímar
  • FYRIRTÆKJAÞJÓNUSTA

Innskráning

Nýskráning - Fyrirtæki
Nýskráning -Einstaklingar Gleymt lykilorð?
  1. Allar íslenskar bækur
  2. Hymns of the Passion - Passíusálmar ensk

Hymns of the Passion - Passíusálmar ensk

Sækja mynd
Image description
Price:5.199 ISK
Vörunúmer: SU B10021
Hvar er varan fáanleg

Penninn Eymundsson

  • Austurstræti 18
  • Skólavörðustígur

Höfundur

Hallgrímur Pétursson

Product description

HYMNS OF THE PASSION – Passíusálmarnir á ensku.
Útgáfa þessi er fjórða útgáfa Passíusálmanna á ensku. Þýðandinn, Gracia Grindal, var prófessor við Luther Seminary í St. Paul, Minnesota, Bandaríkjunum. Hún er menntaður guðfræðingur og sagnfræðingur og afkastamikill rithöfundur og skáld. Hún hefur gefið út bækur um sálmasögu, ævisögur kvenna og eigin ljóð. Sálma hennar og sálmaþýðingar er að finna í mörgum sálmabókum hinna ýmsu kirkjudeilda í Bandaríkjunum. Hún hefur lagt mikla áherslu á hve mikilvægt það er að sjá sögu sína í samhengi við frásagnir Biblíunnar og hvernig sú nálgun birtist í sálmakveðskap fyrr og síðar. Sem augljóst er í Passíusálmum Hallgríms Péturssonar.

Um Passíusálmana:
Ljóð sem hrifið hafa hjörtu íslensku þjóðarinnar
Passíusálmar Hallgríms Péturssonar (1614-1674) hafa verið íslensku þjóðinni hjartfólgnari en nokkurt annað skáldverk. Þeir hafa verið gefnir út um hundrað sinnum, oftar en nokkur íslensk bók önnur, og þýdd á ýmis erlend tungumál.
Barnsleg einlægni þeirra og trúarþel, djúp viska og andans kraftur, orðkynngi og málsnilld hafa fylgt kynslóðum þessa lands frá vöggu til grafar allt til þessa dags. Óháð trú og lífsskoðunum hefur fólk hrifist af þeim og notið þeirra. Enn þann dag í dag sækja tónskáld og aðrir listamenn innblástur í Passíusálmana. Eiginhandarrit Hallgríms Péturssonar að Passíusálmunum er varðveitt í Þjóðarbókhlöðunni og er á heimsminjaskrá UNESCO

Hallgrímur Pétursson – Ævi og arfleifð
Í formála gerir Karl Sigurbjörnsson biskup grein fyrir ævi Hallgríms Péturssonar og áhrif hans á íslenskt trúarlíf og menningu. Þjóðin hreifst ekki einasta af skáldskap hans heldur ævi og örlögum hans og eiginkonu hans, Guðríðar Símonardóttur.

Product category

    Íslenskar bækur, Fræði- og handbækur
  • Form: Kilja
  • Útgáfuár: 2019
  • Útgefandi: Skálholtsútgáfan
  • Blaðsíðufjöldi: 220
  • Staðsetningar og opnunartímar
  • Skilmálar
  • Hafa samband
  • Vildarklúbbur
  • Um Pennann Eymundsson
  • Verslanir
  • Dreifingarmiðstöð - Verkstæði
  • | Penninn ehf. - Kt. 560109-0670 - Smáratorg 3, 201 Kópavogur - Ísland, Vsknr. 100269 |

540 2000

Skiptiborð

Samband við allar verslanir