Látra Björg
| Price: | 5.999 ISK |
Vörunúmer: BKHLA2020
Hvar er varan fáanleg
Penninn Eymundsson
- Austurstræti 18
Höfundur
Product description
Látra-Björg (1716-1784), kraftaskáld, sjómaður, flökkukona - goðsögn í lifanda lífi og ráðgáta eftir að hún lést á vergangi í Móðuharðindunum. Samtíðarmenn hennar óttuðust hana. Með kvæðum sínum var hún sögð geta flutt til fjöll, laðað að sér fisk og deytt menn eða fært þeim gæfu.
Í þessari bók eru saman komin öll helstu kvæði Látra-Bjargar og um leið skýringar Helga Jónssonar frá Þverá í Dalsmynni og samantekt hans á æviferli hennar, en Helgi var einhver dularfyllsti rithöfundur Íslandssögunnar.
Í sérstökum viðauka er svo að finna Látrabréfið sem líkur eru á að sé eini varðveitti prósatextinn eftir Látra-Björgu, einhver kynngimagnaðasti orðagaldur sem um getur, sagður hafa fundist á skemmuvegg á Látrum árið 1740.
Product category
-
Íslenskar bækur, Ljóð og kvæði
- Form: Innbundin
- Útgáfuár: 2020
- Blaðsíðufjöldi: 128
