Ein
| Price: | 3.999 ISK |
Höfundur
Product description
Þegar ung kona sem starfar í heimaþjónustu mætir til vinnu í blokk fyrir eldri borgara við Aflagranda blasir við henni óvænt sýn. Hún óttast að eiga sök á því að hafa hrundið af stað hræðilegri atburðarás.
Á annarri hæð í sömu blokk rennur upp fyrir eldri manni að veski hans og bíllyklum hefur verið stolið og hann fyllist örvæntingu og bræði.
Í New York, borg sem er lömuð af ótta, berst ungur íslenskur læknir við að bjarga fórnarlömbum Covid-19 faraldursins. Fortíð hennar hefur skilið eftir sig sár á líkama og sál en óbærilegt ástandið fær hana til að taka óvænta og erfiða ákvörðun.
Vonir, þrár og hversdagsleiki ólíks fólks fléttast saman með látlausum en áhrifamiklum hætti í fyrstu skáldsögu Ásdísar Höllu Bragadóttur.
Áður hafa komið út eftir hana minningabækurnarTvísagaogHornaugasem vöktu mikla athygli og hlutu einróma lof gagnrýnenda.Einer djúp, sár og spennandi saga sem situr lengi í höfði lesandans.
Product category
-
Íslenskar bækur, Skáldverk íslensk - innbundin
- Form: Innbundin
- Útgáfuár: 2020
- Útgefandi: Bjartur Veröld
- Blaðsíðufjöldi: 301
