Log In

to shop

Karfa

  • BÆKUR & TÍMARIT
  • REKSTUR & RITFÖNG
  • HÚSGÖGN
  • Gjafavara
  • Töskur
  • Föndur og Leikföng
  • Skemmtilegt
  • HAY
  • Opnunartímar
FYRIRTÆKJAÞJÓNUSTA
Valmynd
  • BÆKUR & TÍMARIT
  • REKSTUR & RITFÖNG
  • HÚSGÖGN
  • Gjafavara
  • Töskur
  • Föndur og Leikföng
  • Skemmtilegt
  • HAY
  • Opnunartímar
  • FYRIRTÆKJAÞJÓNUSTA

Innskráning

Nýskráning - Fyrirtæki
Nýskráning -Einstaklingar Gleymt lykilorð?
  1. Allar íslenskar bækur
  2. Martröð í Mykinesi

Martröð í Mykinesi

Sækja mynd
Image description
Price:6.999 ISK
Vörunúmer: UGL309
Hvar er varan fáanleg

Penninn Eymundsson

  • Akureyri

Höfundur

Grækaris D. Magnussen / Magnús Þór Hafsteinsson

Product description

Laust fyrir hádegi 26. september 1970 brotlenti Fokker Friendship-vél Flugfélags Íslands í roki, þoku og rigningu undir tindinum Knúki á Mykinesi í Færeyjum. Alls voru 34 um borð í fullsetinni vélinni. Fjögurra manna áhöfnin var skipuð Íslendingum og tveir í farþegahópnum voru frá Íslandi.
Flak vélarinnar fannst ekki fyrr en nokkrum klukkustundum síðar. Þá voru átta látnir en 26 á lífi. Björgunaraðgerðir hófust við afar erfiðar aðstæður. Mykines var einöngruð klettaeyja með fáum íbúum sem lifðu af búskap, fuglatekju og fiskveiðum. Fólkið þar stóð frammi fyrir hópslysi sem enginn hafði ímyndað sér að gæti orðið í Færeyjum.
Björgunarlið, sem var sent til Mykiness, varð að glíma við illviðri og miklar torfærur á leið sinni á slysstaðinn. Áhöfn flugvélarinnar og þau úr farþegahópnum sem gátu staðið á fótum urðu sjálf að ganga ofan af fallinu til byggða.
Þessi bók lýsir einstakri og ógleymanlegri sögu sem hefur ekki nema að örlitlu leyti komið fyrir sjónir íslenskra lesenda fyrr. Hér má lesa um hetjudáðir, hugprýði, fórnir og æðruleysi, en líka um þjáningar, sorg og eftirsjá. Enginn sem lætur sig varða mannleg örlög getur látið þessa bók fram hjá sér fara.

Product category

    Íslenskar bækur, Fræði- og handbækur
  • Form: Innbundin
  • Útgáfuár: 2020
  • Útgefandi: Ugla útgáfa ehf
  • Blaðsíðufjöldi: 416
  • Staðsetningar og opnunartímar
  • Skilmálar
  • Hafa samband
  • Vildarklúbbur
  • Um Pennann Eymundsson
  • Verslanir
  • Dreifingarmiðstöð - Verkstæði
  • | Penninn ehf. - Kt. 560109-0670 - Smáratorg 3, 201 Kópavogur - Ísland, Vsknr. 100269 |

540 2000

Skiptiborð

Samband við allar verslanir