Gilgameskviða
| Price: | 3.999 ISK |
Penninn Eymundsson
- Kringlan Suður
- Akureyri
- Skólavörðustígur
- Smáralind
Product description
Hið forna söguljóð, Gilgameskviða, er eitt elsta bókmenntaverk sem varðveist hefur og rekur ævagamlar goðsagnir um Gilgames, hetjukonung í Mesópótamíu hinni fornu, Enkidú félaga hans, samband þeirra og samskipti við guði og menn, yndiskonur og ófreskjur, ofurmenni og ölseljur. Höfuðstef kviðunnar er þó fyrst og fremst mannlegar tilfinningar; einmanaleiki, vinátta, missir, hefnd, eftirsjá, óttinn við dauðann og leitin að ódauðleikanum. Þótt þúsundir ára hafi liðið og sögusviðið sé framandi og furðulegt tekst sögunni af Gilgames enn að snerta lesandann með innileik sínum. Stefán Steinsson þýddi.
Þýðing Stefán Steinssonar á þessu magnaða verki kom fyrst út fyrir aldarfjórðungi en síðan hefur margt gerst; ný leirtöflubrot hafa fundist og fyllt upp í eyður og fræðimenn hafa lagt fram nýjar þýðingar og túlkanir. Hér birtist því endurskoðuð þýðing Stefáns, sögð á nútímalegu og vönduðu máli og veitin innsýn í horfinn heim og menningu. Þýðingunni fylgja ítarlegir kaflar um tilurð og varðveislu kviðunnar, skýringar á efni hennar og frásagnir af tungum og menningu í Mesópótamíu.
Product category
-
Íslenskar bækur, Skáldverk þýdd - kiljur
- Form: Kilja
- Útgáfuár: 2021
- Blaðsíðufjöldi: 336
