Snarkið í stjörnunum
| Price: | 4.399 ISK |
Vörunúmer: BENE320735
Hvar er varan fáanleg
Penninn Eymundsson
- Austurstræti 18
- Kringlan Suður
- Hafnarfjörður
- Skólavörðustígur
- Smáralind
Höfundur
Product description
Tilvera mín er sprottin af einni setningu; sjö orðum sögðum í eldhúsi í Skaftahlíð snemma morguns í janúarmánuði árið 1959. Ungur maður hafði komið upp úr kjallaraíbúð og stefndi niður að horni Skaftahlíðar og Lönguhlíðar. Hann gekk framhjá litlu fjölbýlishúsi, amma mín horfði út um eldhúsglugga á annarri hæðinni og muldraði setninguna sem allt hvílir á: Stakkels manden, hvorfor er honum svo kalt?
Snarkið í stjörnunum er ættarsaga sem hverfist um hugarheim móðurlauss sjö ára drengs í Reykjavík í kringum 1970.
Snarkið í stjörnunum er fimmta skáldsaga höfundar og kom fyrst út árið 2003. Jón Kalman hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin 2005 fyrir Sumarljós, og svo kemur nóttin og tilnefningu til sömu verðlauna fyrir Sögu Ástu árið 2017.
Product category
-
Íslenskar bækur, Skáldverk íslensk - kiljur
- Form: Kilja
- Útgáfuár: 2022
