Drepsvart hraun
| Price: | 4.459 ISK |
Penninn Eymundsson
- Akureyri
- Smáralind
Höfundur
Product description
Þegar hringt er í Áróru með þær fréttir að ókunnugt barn segist vera systir hennar endurfædd bregður henni illa þótt staðhæfingin sé fráleit. Hún hefur leitað systur sinnar í þrjú ár án þess að finna neinar vísbendingar, en nú virðist þetta litla barn búa yfir nýjum upplýsingum. Sama dag kemur lögreglumaðurinn Daníel heim og finnur kveðjubréf frá leigjanda sínum, dragdrottningunni Lady Gúgúlú, sem segir upp húsnæðinu og kveðst þurfa að fara úr landi í skyndi. Það hljómar einkennilega og þegar þrír ógnandi menn birtast í leit að drottningunni verður ljóst að eitthvað er alls ekki eins og það á að vera.
Drepsvart hraun er afar fimlega fléttuð og hressandi spennusaga um ókannaðar lendur og óhugnanlegar fyrirætlanir. Áróra, Daníel og þeirra fólk eru lesendum að góðu kunn úr bókunum Helköld sól, Blóðrauður sjór og Náhvít jörð.
Product category
-
Íslenskar bækur, Skáldverk íslensk - innbundin
- Form: Innbundin
- Útgáfuár: 2022
- Blaðsíðufjöldi: 297
