Log In

to shop

Karfa

  • BÆKUR & TÍMARIT
  • REKSTUR & RITFÖNG
  • HÚSGÖGN
  • Gjafavara
  • Töskur
  • Föndur og Leikföng
  • Skemmtilegt
  • HAY
  • Opnunartímar
FYRIRTÆKJAÞJÓNUSTA
Valmynd
  • BÆKUR & TÍMARIT
  • REKSTUR & RITFÖNG
  • HÚSGÖGN
  • Gjafavara
  • Töskur
  • Föndur og Leikföng
  • Skemmtilegt
  • HAY
  • Opnunartímar
  • FYRIRTÆKJAÞJÓNUSTA

Innskráning

Nýskráning - Fyrirtæki
Nýskráning -Einstaklingar Gleymt lykilorð?
  1. Allar íslenskar bækur
  2. Vorflóð í fjöllunum

Vorflóð í fjöllunum

Sækja mynd
Image description
Price:4.799 ISK
Vörunúmer: SOR9789935313478
Hvar er varan fáanleg

Penninn Eymundsson

  • Akranes
  • Austurstræti 18
  • Kringlan Suður
  • Akureyri
  • Hallarmúli 4
  • Hafnarfjörður
  • Húsavík
  • Ísafjörður
  • Keflavík
  • Skólavörðustígur
  • Mjódd
  • Vestmannaeyjar
  • Selfoss
  • Smáralind

Höfundur

Karin Harjegard

Product description

Anna-Britta lifir rólegu og þægilegu lífi á eyjunni sinni eftir stormasama ævi. Hnútur í brjóstinu minnir hana á að tími hennar er takmarkaður og áður en hún kveður þennan heim verður hún að gera eitt: skrifa dótturinni sem hún neyddist til að gefa frá sér rúmlega þriggja ára gamla. Sorgin vegna þessa hefur fylgt henni allar götur síðan – og nú er kominn tími til að segja sannleikann.
Fredrika er vinsæll og eftirsóttur talmeinafræðingur og fyrirlesari, sátt við líf sitt sem fráskilin kona. Bréf frá ókunnugri konu sem segist vera blóðmóðir hennar setur allt úr skorðum. Hún flýr upp í fjöllin þar sem hún leigir bústað hjá Helenu og þar neyðist hún til að horfast í augu við að fortíðin sem hún taldi sig þekkja er byggð á þöggun og hálfsannleik.
Helena rekur veitingahúsið sitt á býlinu í Fjällnäs og lífið gengur sinn vanagang, þótt einmanaleikinn láti stundum á sér kræla. Emily er um það bil að fara að búa með Samuel, Louise hefur fundið ástina og er á leið í hjónaband og Sonja sýnir sífellt sterkari einkenni heilabilunar. Spurningin um Rikard læðist óneitanlega að Helenu: voru það kannski mistök að slíta sambandinu við hann?
Vorflóðið í fjöllunum er fjórða bókin í bókaflokknum um Helenu og líf hennar í fjöllunum í Härjedalen – saga um leyndarmál, móðurást, fyrirgefningu og hugrekki til að finna nýjan farveg þegar lífið breytir um stefnu.

Product category

    Íslenskar bækur, Skáldverk þýdd - kiljur
  • Form: Kilja
  • Útgáfuár: 2026
  • Staðsetningar og opnunartímar
  • Skilmálar
  • Hafa samband
  • Vildarklúbbur
  • Um Pennann Eymundsson
  • Verslanir
  • Dreifingarmiðstöð - Verkstæði
  • | Penninn ehf. - Kt. 560109-0670 - Smáratorg 3, 201 Kópavogur - Ísland, Vsknr. 100269 |

540 2000

Skiptiborð

Samband við allar verslanir