Frá gataspjöldum til gervigreindar
| Price: | 5.559 ISK |
Penninn Eymundsson
- Austurstræti 18
- Kringlan Suður
- Selfoss
- Smáralind
Höfundur
Product description
Fáir hafa upplifað þá byltingu frá fyrstu hendi. Höfundur bókarinnar, Guðjón H. Bernharðsson, var þar frá upphafi. Ferill hans hófst árið 1967 við fyrirferðarmiklar skýrsluvélar og gataspjöld, áður en nokkur maður á Íslandi átti eigin tölvu.
Í þessari einlægu frásögn er fylgst með yfir hálfrar aldar tækniþróun með augum þess sem tók virkan þátt í að móta hana. Lesandinn fær innsýn í uppbyggingu fyrsta kreditkorta kerfisins, stofnun Tölvubankans árið 1981 og tölvuvæðingu fjölda íslenskra fyrirtækja og stofnana. Jafnframt er skyggnst á bak við tjöldin og sagt frá þeim áskorunum, sigrum og fórnum sem fylgdu því að ryðja nýjar brautir í íslensku atvinnulífi.
Frá gataspjöldum til gervigreindar er saga um tæknibreytingar, mannleg samskipti og þrautseigju. Hún er einstök heimild um þann kafla í sögu þjóðarinnar þegar Ísland tók stökkið og varð nútíma upplýsingasamfélag.
Um höfundinn: Guðjón H. Bernharðsson hefur starfað við hugbúnaðargerð og kerfisfræði frá árinu 1967. Sem einn af stofnendum Tölvubankans hf. kom hann að hönnun og þróun fjölda upplýsingakerfa sem mörkuðu upphaf tölvuvæðingar á Íslandi.
