Log In

to shop

Karfa

  • BÆKUR & TÍMARIT
  • REKSTUR & RITFÖNG
  • HÚSGÖGN
  • Gjafavara
  • Töskur
  • Föndur og Leikföng
  • Skemmtilegt
  • HAY
  • Opnunartímar
FYRIRTÆKJAÞJÓNUSTA
Valmynd
  • BÆKUR & TÍMARIT
  • REKSTUR & RITFÖNG
  • HÚSGÖGN
  • Gjafavara
  • Töskur
  • Föndur og Leikföng
  • Skemmtilegt
  • HAY
  • Opnunartímar
  • FYRIRTÆKJAÞJÓNUSTA

Innskráning

Nýskráning - Fyrirtæki
Nýskráning -Einstaklingar Gleymt lykilorð?
  1. Allar íslenskar bækur
  2. Dóttir dýjakóngs

Dóttir dýjakóngs

Sækja mynd
Image description
Price:4.799 ISK
Vörunúmer: UGL672
Hvar er varan fáanleg

Penninn Eymundsson

  • Akranes
  • Austurstræti 18
  • Kringlan Suður
  • Akureyri
  • Hallarmúli 4
  • Hafnarfjörður
  • Húsavík
  • Ísafjörður
  • Skólavörðustígur
  • Mjódd
  • Vestmannaeyjar
  • Selfoss
  • Smáralind

Product description

Ung kona sem búið hefur í foreldrahúsum í litlu þorpi fer alfarin að heiman því hún hefur kynnst manni. En honum fylgir eyðingarmáttur sem verður henni örlagaríkur og birtist á ný í dóttur þeirra og enn síðar dóttursyni.
Áhrifarík skáldsaga um hve fólki reynist erfitt að tengjast og festa rætur á umbrotatímum. Í ljóðrænum myndum er stórra spurninga spurt um vald og svik, sekt og fyrirgefningu, um leitina að merkingu og skilyrðislausri ást.
Heimir Pálsson íslenskaði og ritaði eftirmála.
Eftir útkomu þessarar bókar árið 1985 voru Birgittu Trotzig veitt Pilot-verðlaunin svonefndu. Í rökstuðningi dómnefndar sagði: „Með töfrandi og seiðandi stíl sínum hefur Birgitta Trotzig víkkað mörk hins ósegjanlega … Þrjátíu og fimm ára höfundarferill hennar nær hámarki í Dóttur dýjakóngs.“
Rithöfundurinn og skáldið Birgitta Trotzig (1929–2011) er meðal mikilvægustu rithöfunda Svíþjóðar á síðari hluta tuttugustu aldar. Hún fæddist í Gautaborg, eina barn kennarahjóna. Hún stundaði um hríð nám í bókmenntum en fór síðan að skrifa fyrir blöð og tímarit. Hún giftist listamanninum Ulf Trotzig og bjuggu þau í París á árunum 1955–1969. Þar snerist hún til kaþólskrar trúar. Birgitta Trotzig var margverðlaunuð fyrir bækur sínar og var kjörin í Sænsku akademíuna árið 1993. Dóttir dýjakóngs er ein þekktasta skáldsaga hennar.

Product category

    Íslenskar bækur, Skáldverk þýdd - kiljur
  • Staðsetningar og opnunartímar
  • Skilmálar
  • Hafa samband
  • Vildarklúbbur
  • Um Pennann Eymundsson
  • Verslanir
  • Dreifingarmiðstöð - Verkstæði
  • | Penninn ehf. - Kt. 560109-0670 - Smáratorg 3, 201 Kópavogur - Ísland, Vsknr. 100269 |

540 2000

Skiptiborð

Samband við allar verslanir