Blekpenni 017 Safari svart mattur medium oddur
| Price: | 4.539 ISK |
Penninn Eymundsson
- Ritfangalager
- Smáralind
Product description
LAMY Safari er nútímalegur en jafnframt tímalaus penni. Hannaður fyrir ungu kynslóðina og þau ungu í hjarta. Safari penninn er vissulega í sínum eigin flokki og vakti athygli fyrir framsækna hönnun og áberandi gormaklemmu þegar hann kom fyrst á markað á áttunda áratugnum. Þá dregur áhugaverð hönnun ekkert úr gæðum og þykir penninn einstaklega sterkur og áreiðanlegur. Skemmtilegir litir og nútímaleg hönnun hafa einkennt Safari pennana frá Lamy og endurvakið áhuga á fínni skriffærum hjá ungum jafnt sem öldnum. Safari pennarnir hafa því fest sig rækileg í sessi sem eftirsótt vara um allan heim
Hönnuður: Wolfgang Fabian
Úr sterku plasti með málm klemmu. Þægilegt grip. Póleraður stál oddur, kemur með LAMY T 10 bláu bleki og hægt að nota með Z 28 blekdælu
Gripið er hannað fyrir þægindi og langtímanotkun án þess að þreyta geri vart við sig í fingrum.
á blekpennanum er gluggi sem sýnir hvað mikið blek er eftir í hylkinu.
Bolur pennans og lok eru úr sterku ABS plasti og vegleg gormklemma úr stáli er á lokinu.
Týpa: Blekpenni
Litur: Svartur, mattur
Oddur: Medium
Fylling: T10, blá fylgir
Product category
- Vörumerki: LAMY Skriffæri, Blekpennar SAFARI

