ADHD-ADHD 7 CD
Item Units:
| Price: | 2.899 ISK |
Vörunúmer: KNGADHD07CD
Product description
Hljómplata þessi var tekin upp á haustmánuðum 2018 í Svenska Grammofonstudioen í Gautaborg. Upptökur og hljóðblöndun voru í höndum Ívars Ragnarssonar og hljómsveitarmeðlima. Götz-Michael Rieth hjá Eastside Mastering Studios í Berlín sá um hljómjöfnun.
Hljómplatan inniheldur 9 glæný lög, öll eftir hljómsveitarmeðlimi; sum þeirra eru grípandi og hress, önnur meir inn á við og rólegri, en eru þó (mögulega) rökrétt framhald af fyrri verkum sveitarinnar. Hver veit?
Product category
- Flytjandi: ADHD
- Útgefandi: kongó
- Útgáfuár: 2019 Tónlist, Tónlist popp/rokk íslenskt
- Form: CD
