Kaleo-A/B
| Price: | 2.799 ISK |
Penninn Eymundsson
- Húsavík
Product description
A/B er önnur breiðskífan frá íslensku
hljómsveitinni Kaleo sem hefur verið að gera
allt vitlaust vestan hafs undanfarna mánuði.
Þeir voru nýverið á lista tímaritsins Rolling
Stone yfir "10 nýjar hljómsveitir sem þú þarft
að þekkja" og spiluðu t.a.m. í þætti Conan
O'Brien á TBS. Strákarnir hafa undanfarið spilað
á uppseldum tónleikaferðalögum í Bandaríkjunum
og Ástralíu og komið fram á mörgum af stærstu
tónlistarhátíðum heims.
Síðan Kaleo slógu í gegn
með útsetningu sinni af "Vori í Vaglaskógi"
hefur allt legið uppávið og náði hljómsveitin
meðal annars að landa útgáfusamningi við Warner
Music og flutti til Texas. Fyrsta platan í því
samstarfi kemur einmitt út á föstudaginn útum
allan heim. Hér á landi er í raun um aðra
breiðskífu sveitarinnar að ræða og inniheldur
hún meðal annars smellina "All The Pretty
Girls", "Way Down We Go", "No Good", "I Can't Go
On Without You" og lagið "Save Yourself" sem er
nýfarið í spilun.
Product category
- Flytjandi: Kaleo
- Útgefandi: Sena ehf
- Útgáfuár: 2016 Tónlist, Tónlist popp/rokk íslenskt
- Form: CD
