Kaleo-Kaleo
| Price: | 2.699 ISK |
Product description
Mosfellska hljómsveitin Kaleo hefur heldur betur
vakið athygli á þessu ári. Þessir 4 ungu menn
hafa komið eins og stormsveipur inní íslenskt
tónlistarlíf og tekið yfir útvörp landsmanna með
lögum eins og "Vor í Vaglaskógi" og
"Rock'N'Roller". Eftir að hafa fylgst með Kaleo
í Músíktilraunum fyrr á árinu og velgengni
þeirra sl. sumar ákvað Sena að gefa út þeirra
fyrstu plötu og heitir hún einfaldlega Kaleo. Á
plötunni er að finna frumsamið efni frá
sveitinni ásamt endurgerð þeirra af hinu sígilda
dægurlagi "Vor í Vaglaskógi". Á plötunni sýnir
hljómsveitin hversu fjölbreytt hún er og má bæði
heyra kraftmikið rokk og ról ásamt því að
hljómsveitin sýnir sínar mýkri hliðar.
Nafnið
Kaleo kemur frá Hawaii og stendur fyrir "The
sound". Nafnið á vel við sveitina enda eyðir hún
miklum tíma í að finna réttan hljóm í hverju
lagi. Það heyrist langar leiðir að gamlar rokk
goðsagnir hafa haft áhrif á strákana og er gömul
sál í tónlistinni.
Product category
- Flytjandi: Kaleo
- Útgefandi: Sena ehf
- Útgáfuár: 2013 Tónlist, Tónlist popp/rokk íslenskt
- Form: CD

