Að borða Búdda - Líf og dauði í tíbeskum bæ
| Verð: | 4.149 ISK |
Penninn Eymundsson
- Austurstræti 18
- Akureyri
- Hafnarfjörður
- Ísafjörður
- Skólavörðustígur
Höfundur
Vörulýsing
Þegar Rauði her Maos Zedong flúði inn á hásléttu Tíbets í kínverska
borgarastríðinu voru hermennirnir svo hungraðir að þeir rændu klaustrin í bænum Ngaba og víðar og borðuðu trúarlegar styttur úr byggmjöli og smjöri og álitu að þeir væru að leggja sér sjálfan Búdda til munns. Róstur og skærur í héruðunum umhverfis Ngaba leiddu til
þess að íbúarnir þar urðu eitt aðalhreyfiaflið í tíbesku andspyrnunni
sem náði hámarki með sjálfsíkveikjum á götum úti á 21. öldinni.
Í Að borða Búdda varpar Barbara Demick ljósi á menningu sem hefur lengi verið rómantíseruð af Vesturlandabúum sem andleg og friðsamleg. Hún sýnir hvað það þýðir raunverulega að vera Tíbetbúi
í nútímanum, reyna að varðveita menningu sína, trú og tungumál
fyrir óstöðvandi ofurvaldi, gripdeildum þess og viðvarandi kúgun.
Kínverjar hafa þegar skipað nefnd sem á að velja næsta Dalai Lama. Ef við tökum ekki slaginn, þá verða þeir á undan okkur. Þeir finna einhvern sætan, lítinn, tíbeskan dreng sem þeir geta haft fulla stjórn á.
Barbara Demick (f. 1959) er margverðlaunaður bandarískur blaðamaður, þekkt fyrir greinar sínar um mannréttindamál og efnahags og
samfélagslegt umrót í Austur-Evrópu og Asíu. Í Að borða Búdda fjallar Demick um þær afdrifaríku breytingar sem orðið hafa á tíbesku samfélagi frá innrás Kínverja í landið um miðja síðustu öld.
Á íslensku hefur áður komið út eftir hana metsölubókin Engan þarf að öfunda: Daglegt líf í Norður-Kóreu.
Vöruflokkur
-
Íslenskar bækur, Fræði- og handbækur
- Form: Kilja
- Útgáfuár: 2021
- Blaðsíðufjöldi: 400
