Ameríska goðsögnin
| Verð: | 7.999 ISK |
Penninn Eymundsson
- Akranes
- Akureyri
- Hafnarfjörður
- Ísafjörður
- Keflavík
- Smáralind
Höfundur
Vörulýsing
Hin goðsagnakenndu Harley-Davidson-mótorhjól þarf ekki að kynna fyrir neinum, enda muna flestir eftir vígreifum lögreglumönnum á slíkum gæðingum. Færri vita hins vegar að þetta voru vinsælustu mótorhjólin á fyrri hluta síðustu aldar þegar sannkallaðar hetjur riðu um héruð landsins á vélfákum.
Hér er saga Harley-Davidson á Íslandi rifjuð upp í máli og myndum, allt frá því að fyrstu mótorhjólin birtust árið 1917. Eftir gullöld einstaklingshjólanna á þriðja og fjórða áratugnum tók lögreglan þau í þjónustu sína og þá upphófst einn merkilegasti kaflinn í sögu þeirra. Í bókinni er einnig fjallað um nokkrar aðrar gerðir amerískra mótorhjóla sem bárust hingað til lands á liðinni öld.
Höfundurinn, Njáll Gunnlaugsson, er landsþekktur áhugamaður um mótorhjól og hefur lengi rannsakað sögu þeirra. Hann skrifar reglulega um bíla og mótorhjól í dagblöð og á samfélagsmiðla, samhliða því að kenna Íslendingum að aka þessum undratækjum.
Ómissandi bók fyrir allt áhugafólk um vélknúin ökutæki.
Vöruflokkur
-
Íslenskar bækur, Fræði- og handbækur
- Form: Innbundin
- Útgáfuár: 2022
- Blaðsíðufjöldi: 176
