Árstíðir Vinnubók
| Verð: | 5.999 ISK |
Penninn Eymundsson
- Austurstræti 18
- Kringlan Suður
- Akureyri
- Hallarmúli 4
- Hafnarfjörður
- Húsavík
- Keflavík
- Skólavörðustígur
- Smáralind
Vörulýsing
Árstíðir verkefnabók er ætluð þeim sem tileinka sér íslensku sem annað mál. Bókin styður við lestur og kennslu örsagnasafnsins Árstíðir sem notið hefur mikilla vinsælda og verið kennd á ýmsum skólastigum á Íslandi sem og erlendis. Sögurnar eru 101 talsins og veita innsýn í íslenskan veruleika allt árið um kring.
Í verkefnabókinni er að finna lykilorð, spurningar, ritunarverkefni og verkefni sem tengjast sögunum í Árstíðum þematískt. Þau reyna á orðaforða, málfræði, málnotkun og stafsetningu. Verkefnin eru miserfið og merkt eftir getustigi. Auk þess má finna í bókinni orðasambönd, framburðaræfingar og hlustunaræfingar sem styðjast við Árstíðir hljóðbók. Efnið var unnið í samráði við nemendur og kennara í faginu og nýtist í sjálfsnámi jafnt sem grunnskóla, tungumálaskóla, framhaldsskóla og háskóla.
Vöruflokkur
-
Íslenskar bækur, Fræði- og handbækur
- Form: Kilja
- Útgáfuár: 2023
