Austurlenskar rætur kristninnar
| Verð: | 4.699 ISK |
Penninn Eymundsson
- Austurstræti 18
- Hafnarfjörður
- Smáralind
Höfundur
Vörulýsing
Fundur merkilegra handrita vitna um að Jesús dvaldist hin þöglu ár æsku sinnar í Austurlöndum. Þar kynntist hann saraþústratrú, búddadómi og hindúasið ásamt því að boða Orð Guðs. Greint er frá því hvað þar dreif á daga Jesú einnig eftir krossfestinguna!
Í þessar bók eru raktir andlegir straumar frá Austurlöndum sem settu mark sitt á samtíð Jesú, enda voru greiðar samgöngur og viðskipti á milli þessara menningasvæða í kjölfar mikilla herleiðangra. Það voru einkum gnóstísk og búddhísk áhrif sem mótuðu frumkristnina í anda kenninga Krists.
Slíkra áhrifa gætir enn í Biblíunni þó að leynt og ljóst hafi verið reynt að afmá þau. Þar má nefna karma- og endur-fæðingarlögmálið og kenninguna um óbirtan guðdómleika barna Guðs sem þau deila með Jesú Kristi ásamt öðrum kristsbirtum, uppstignum eldri bræðrum og systrum okkar, sem skipa sér í himneska sveit Stóra hvíta bræðralagsins.
Þessir fullnuma synir og dætur Guðs opinbera boðun Guðs í holdinu og í gegnum spámenn trúarbragðanna á öllum tímum. Meistararnir hafa endurbirt hinn týnda og uppruna-lega boðskap frumkristninnar sem Jesús kenndi og upp-fært hann til nútímans. Þar er komið fagnaðarerindi vatns-beraaldarinnar. Höfundur flytur þennan boðskap og leggur út frá honum, og leitar víða fanga.
Vöruflokkur
-
Íslenskar bækur, Trúarrit og bænir
- Form: Kilja
- Útgáfuár: 2021
- Blaðsíðufjöldi: 308
