Benjamín dúfa
| Verð: | 4.699 ISK |
Penninn Eymundsson
- Akranes
- Austurstræti 18
- Kringlan Suður
- Akureyri
- Hallarmúli 4
- Hafnarfjörður
- Húsavík
- Ísafjörður
- Keflavík
- Mjódd
- Selfoss
- Smáralind
Höfundur
Vörulýsing
Þetta var ekki bara leikur. Á bak við þessa búninga og þessi vopn var heilagur tilgangur, ákvörðun sem ekki varð haggað: Gegn ranglæti, með réttlæti.
Þeir Róland dreki, Andrés örn, Baldur hvíti og Benjamín dúfa stofna riddarareglu Rauða drekans og eiga viðburðarí kt sumar í vændum. Dagarnir í Hverfinu verða sem ótrúlegt ævintýri, þar til brestir koma í vináttuna og kaldur veruleik[1]inn breytir lífi þeirra til frambúðar.
Sagan um Benjamín dúfu hefur haft djúpstæð áhrif á lesendur af ólíkum kynslóðum enda ein vinsælasta barnabók sem komið hefur út á Íslandi. Fyrir hana hlaut Friðrik Erlingsson meðal annars Íslensku barnabókaverðlaunin árið 1992. Bókin hefur komið út á fjölda tungumála og árið 1995 var gerð kvikmynd eftir sögunni sem sýnd hefur verið víða um lönd og hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga.
Vöruflokkur
-
Barnabækur, Barnabækur íslenskar - kiljur
- Form: Kilja
- Útgáfuár: 2024
- Blaðsíðufjöldi: 177
