Breytt ástand
| Verð: | 3.999 ISK |
Penninn Eymundsson
- Austurstræti 18
- Hafnarfjörður
- Smáralind
Höfundur
Vörulýsing
Við viljum breytt ástand, eitthvað til að hrista upp í lífinu. Kveikja eða slökkva á okkur. Ýta hlutum af stað eða stöðva þá. Við viljum ást, kynlíf og hamingju.
Í þessu áleitnu sagnasafni tekst Berglind Ósk á við hjörtun sem þrá, heimta meira eða vilja einfaldlega finna frið. Að partýið haldi áfram að eilífu, að temja fíknina, að losna úr ofbeldissambandinu
- finna leið til að hverfa eða raða sér saman að nýju.
Ein sterkasta frumraun sem ég hef komist í - Bergþóra Snæbjörnsdóttir
Sögur Berglindar draga upp djarfa mynd af íslenskum samtíma. Þær ögra lesandanum og sýna að leiðin frá kyrrlátu reykvísku úthverfi yfir í jaðar samfélagsins er styttri en flesta grunar.
Berglind Ósk fæddist árið 1985 í Kópavogi. Hún hefur áður gefið út ljóðabækurnar Berorðað (2016) og Loddaralíðan (2021). Einnig hafa ljóð, sögur og þýðingar eftir hana birst í ýmsum tímaritum.
Vöruflokkur
-
Íslenskar bækur, Skáldverk íslensk - innbundin
- Form: Innbundin
- Útgáfuár: 2022
- Blaðsíðufjöldi: 158
