Churchill - Stjórnvitringurinn framsýni
| Verð: | 7.499 ISK |
Penninn Eymundsson
- Austurstræti 18
- Kringlan Suður
- Akureyri
- Skólavörðustígur
- Smáralind
Höfundur
Vörulýsing
Winston Churchill er eini stjórnmálaleiðtogi mannkynssögunnar sem hefur átt sína eigin kristalkúlu, sagði Richard Nixon Bandaríkjaforseti. Churchill bjó nefnilega yfir einstakri gáfu til að sjá fram í tímann og spá fyrir um óorðna hluti. Að baki bjó yfirgripsmikil söguþekking hans, víðtæk reynsla og óvenjulegt hugarflug og innsæi.
Churchill spáði meðal annars fyrir um heimstyrjöldina fyrri, smíði skriðdreka, þýðingu flugvéla í stríðsrekstri, uppgang leiðtoga á borð við Adolf Hitler, þróun kjarnorkuvopna, stofnun Ísraelsríkis, átök múslima og hindúa, Evrópusamvinnuna, endalok kalda stríðsins og jafnvel eigin dauðdaga.
Í þessari merkilegu bók er saga Churchills rakin með hliðsjón af þessum og fleiri dæmum af ótrúlegri framsýni hans um helstu atburði og breytingar í hernaðar- og stjórnmálasögu tuttugustu aldar.
Magnús Þór Hafsteinsson íslenskaði.
Vöruflokkur
-
Íslenskar bækur, Ævisögur - þýddar
- Form: Innbundin
- Útgáfuár: 2024
- Blaðsíðufjöldi: 264
