Ég kom til að gráta
| Verð: | 7.999 ISK |
Penninn Eymundsson
- Akranes
- Austurstræti 18
- Kringlan Suður
- Akureyri
- Hallarmúli 4
- Hafnarfjörður
- Ísafjörður
- Keflavík
- Skólavörðustígur
- Mjódd
- Vestmannaeyjar
- Selfoss
- Smáralind
Höfundur
Vörulýsing
Hvaða afleiðingar hafa áföll í æsku, brotin sjálfsmynd, brestir í hjónabandi? Eða óttinn við að horfast í augu við sjálfan sig? Við erum öll að glíma við eitthvað, leita jafnvægis, eins og Jónatan sem fer á Snæfellsnes til að biðjast fyrirgefningar og skrifa sig frá erfiðum æskuárum.
Fyrir vestan kynnist hann áhugaverðu fólki sem hristir hressilega upp í honum og löngu týndar tilfinningar blossa upp að nýju.
Þarf hugrekki til að vera ástfanginn af lífinu?
Ó þið sem hafið lokast inni í sjálfbyggðu völundarhúsi.
Eruð þið ekki lángþreytt
á að rekast aftur og aftur
á sama vegginn?
Snúið ykkur við
sjá dyrnar eru hérnamegin
Úti er hábjartur dagur.
Dagur Sigurðarson
Þorgrímur Þráinsson er einn ástsælasti rithöfundur þjóðarinnar sem hefur á löngum ferli snert lesendur með bókum sínum. Ég kom til að gráta er áhrifamikil saga, skrifuð af einstöku næmi, einlægni og hárfínum húmor.
