Einrúm- Rendur ísl
| Verð: | 3.499 ISK |
Penninn Eymundsson
- Austurstræti 18
- Akureyri
- Skólavörðustígur
- Smáralind
Vörulýsing
Ég hef lengi dáðst að verkefni Bjargar Pjetursdóttur, RENDUR.
Ég stóð álengdar og dáðist að fallegum smáröndóttum peysum, húfum og vettlingum. Handfjatlaði flíkurnar sem voru prjónaðar í fallega samsettum litatónum. Þvílík hugmynd, að hanna flík, sérstaklega til að glæða afgangana lífi, gefa þeim tilgang. Nýta alla þessa litlu hnykla sem urðu eftir þegar prjónaverkefnið kláraðist eða þegar það varð aldrei annað en draumur sem dagaði uppi í poka. Þetta var árið 2007 á sýningu þar sem Björg Pjetursdóttir sýndi hönnun sína ásamt stöllu sinni Hildi Einarsdóttur. Ég varð hugfangin af þessum handgerðu, litríku flíkum.
Björg útfærði hönnun sína fyrir einrúm bandið. Aðlagaði uppskriftirnar sem gerðar voru fyrir þræði úr ýmsum áttum þannig að einrúm bandið sé þeirra rauði þráður. Þræðirnir sem verða fletir, sem verða flík. Hún bað dóttur sína að lita litla teikningu, leika sér. Hún yfirfærði teikninguna í peysu, hennar eigin einstöku peysu. Björg hefur útfært uppskriftirnar með það fyrir augum að sköpunargleði sé gefinn laus taumur, leikið sé með liti, fleti, rendur. Að útkoman verði persónuleg, að sá er prjónar geri flíkina að sínu verki.
Vöruflokkur
-
Íslenskar bækur, Mynd- og handmennt
- Form: Kilja
- Útgáfuár: 2018
- Útgefandi: einrúm ehf
