Far heimur far sæll
| Verð: | 4.699 ISK |
Penninn Eymundsson
- Austurstræti 18
- Akureyri
- Keflavík
- Skólavörðustígur
- Selfoss
- Smáralind
Höfundur
Vörulýsing
Kveikja þessarar skáldsögu er Kambsránið, eitt frægasta sakamál Íslandssögunnar. Þá brutust fjórir grímuklæddir menn eina vetrarnótt árið 1827 inn á bænum Kambi, bundu og börðu heimilisfólk og rændu verðmætum.
Sýslumaður og aðstoðarmaður hans leita hinna seku en þetta er ekki venjuleg sakamálasaga. Andrúmsloftið minnir á amerískan vestra sem gerist í Flóanum snemma á 19. öld. Þarna er rigning og drulla og myrkur og hungur. Sterk tilfinning fyrir óbærilegum aðstæðum. Textinn einkennist af leiftrandi hugarflugi og snjöllum og stundum ævintýralegum tengingum. Í frásögninni er hraði og spenna, fyndni og fjör, sorg og tregi. Þar er farið fram og aftur um Íslandssöguna með skáldlegum tilþrifum, grallaraskap á köflum en líka þungum undirtóni og djúpri samúð með hlutskipti þessa fátæka alþýðufólks.
Mórar og skottur eru á kreiki innan um litríkar, breyskar og bráðlifandi persónur, og sögumaður fer um í líki hunds sem aðeins sumir sjá en sér sjálfur allt. Þetta er saga um útskúfun og drauma. Aðdáendur Ófeigs Sigurðssonar þekkja hér sinn mann
Vöruflokkur
-
Íslenskar bækur, Skáldverk íslensk - innbundin
- Form: Innbundin
- Útgáfuár: 2023
- Blaðsíðufjöldi: 334
