Fornbátar á Íslandi II
| Verð: | 10.799 ISK |
Vörulýsing
Bátar hafa ætíð verið Íslendingum ómissandi. Landið er á mörkum hins byggilega heims og því fremur rýrt til ræktunar og búfjárhalds. Hins vegar er sjórinn umhverfis það ríkur af lífi og hefur fiskur, selur, hákarl og annað sjávarfang verið um aldir afar mikilvæg fæða landsmanna. Og til að nálgast gjafir hafsins var nauðsynlegt að hafa báta af ýmsum stærðum og gerðum. Einnig voru bátar mikið nýttir til flutninga og ferðalaga.
Bók þessi er sjálfstætt framhald bókarinnar Fornbátar á Íslandi sem út kom árið 2023 og fjallaði um báta í opinberri eigu. Hér er athyglinni einkum beint að fornbátum í eigu einstaklinga. Birtir eru 50 stuttir kaflar um jafnmarga báta sem smíðaðir voru á árunum 18701950 og nokkra að auki frá sjötta áratugnum. Allt eru þessir bátar forvitnilegir, bæði smíði þeirra og notkun. Einnig og ekki síður er saga þeirra sem að þeim komu áhugaverð, bátasmiðanna, sjómannanna sem fóru á þeim í róðra og aðrar sjóferðir, oft við óblíðar aðstæður, og samfélagið sem þeir tilheyrðu.
