Galdra-Manga Dóttir þess brennda
| Verð: | 6.499 ISK |
Höfundur
Vörulýsing
Manga er ung heimasæta á kostajörðinni Munaðarnesi á Ströndum á 17. öld. Fjölskylda hennar er bjargálna og talin kunna fleira fyrir sér en almennt gerist. En þegar undarlegir fyrirburðir verða í sóknarkirkjunni í Árnesi er sjónum yfirvalda beint að Munaðarnesfólkinu. Í upphafi frásagnarinnar er Manga lögð á flótta yfir heiðina vestur í Ísafjarðardjúp eftir að Þorleifur Kortsson sýslumaður hefur látið brenna föður hennar á báli fyrir galdra. Sjálf er hún útskúfuð og sætir ásökunum sveitunga sinna um fjölkynngi. Lesandinn fylgir Möngu á flóttanum og í baráttu hennar fyrir réttlæti, en um leið eru rifjaðir upp atburðirnir sem leiddu til þess að hún forðaði sér. Sagan er byggð á raunverulegum atburðum og þjóðsagnapersónan Galdra-Manga fær hér uppreistn æru.
Vöruflokkur
-
Íslenskar bækur, Skáldverk - þýdd - innbundin
- Form: Innbundin
- Útgáfuár: 2018
- Útgefandi: Sæmundur-bókaútgáfa
- Blaðsíðufjöldi: 304
