Harðjaxlinn ljúfi Óli Þórðar
| Verð: | 8.999 ISK |
Vörunúmer: SOR9789935313799
Höfundur
Vörulýsing
Mesti harðjaxl íslenskrar fótboltasögu tekur til máls! Frá fjörugri barnæsku á Neðri-Skaga, til viðureigna við bestu knattspyrnumenn heims hefur Óli Þórðar farið sínar eigin leiðir af einurð, heiðarleika og óbilandi keppnisskapi, jafnt innan vallar sem utan. Ósvikin, beinskeytt og bráðskemmtileg saga! Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari
Í þessari einstöku ævisögu segir Óli frá knattspyrnuferlinum sem leikmaður og þjálfari, sigrunum, vonbrigðunum, fórnunum og því sem hefði getað orðið. Ótrúlegar sögur úr boltanum eru á hverju strái en jafnframt veitir hann einlæga og hispurslausa innsýn í líf sitt og fjölskyldu sinnar.
