Haustaugu
| Verð: | 5.999 ISK |
Vörunúmer: JPV100818
Hvar er varan fáanleg
Penninn Eymundsson
- Austurstræti 18
- Smáralind
Höfundur
Vörulýsing
Haustaugu er ellefta ljóðabók Hannesar Péturssonar, en tólf ár eru liðin frá því hann gaf síðast út bók með frumsömdum ljóðum. Hér yrkir maður sem er síungur í ljóðmáli sínu og viðhorfi. Hann hvarflar nú haustaugum yfir umhverfi sitt og tíma, vekur okkur til vitundar um aðkallandi mál og minnist genginna vina á ljúfsáran hátt.
Hannes Pétursson hefur verið eitt ástsælasta skáld þjóðarinnar allt frá því að hans fyrsta ljóðabók kom út árið 1955. Hann hefur sameinað hefð og nútíma í ljóðlist sinni, en jafnframt verið skáld dirfsku og nýjunga. Ljóð Hannesar eiga sér gjarnan rætur í íslenskri náttúru og sögu en þar er samhliða glímt við tilvist okkar hér og nú.
Vöruflokkur
-
Íslenskar bækur, Ljóð og kvæði
- Form: Innbundin
- Útgáfuár: 2018
- Útgefandi: Forlagið
- Blaðsíðufjöldi: 59

