Hestar
| Verð: | 6.259 ISK |
Vörunúmer: ANGU953155
Hvar er varan fáanleg
Penninn Eymundsson
- Akranes
- Austurstræti 18
- Akureyri
- Húsavík
- Ísafjörður
- Smáralind
Höfundur
Vörulýsing
5 - 105 ára. Íslenski hesturinn hefur þolað margt í þúsund ára þjónustuhlutverki við kaldlynda þjóð í köldu landi. Hann hefur troðið vegalaust hraunið, strokið milli landshluta, hrakist á útigangi, drukknað í jökulfljótum og jafnvel gengið aftur. Hér stígur þarfasti þjónninn fram rétt eins og hann er og var allt frá því að fyrsta fylfulla merin steig óstyrkum fæti á íslenska strönd seint á níundu öld; laus við keppnisrembing, upphafningu og tildur.
Hjörleifur Hjartarson og Rán Flygenring sýndu það með bók sinni Fuglar að íslensk fuglafræði er annað og meira en upptalning á þurrum staðreyndum. Nú er komið að hrossunum.
Vöruflokkur
-
Íslenskar bækur, Fræði- og handbækur
- Form: Kilja
- Útgáfuár: 2020
- Útgefandi: Angústúra
- Blaðsíðufjöldi: 184
