Hestvík
| Verð: | 3.759 ISK |
Vörunúmer: JPV337065
Hvar er varan fáanleg
Penninn Eymundsson
- Austurstræti 18
- Selfoss
Höfundur
Vörulýsing
Ísinn í sjoppunni við Valhöll hlaut að bragðast
guðdómlega. Þar sem fólki var áður drekkt eins
og kettlingum í poka eða það sundurlimað fyrir
að stela tvinna var nú boðið upp á pönnukökur
með þeyttum rjóma. Síðan var hægt að kasta
peningi ofan í gjá og óska sér heppni og
hamingju.
Það er liðið á sumar og lyngilmurinn
í Grafningnum fyllir vitin. Frá sumarbústöðunum
sjást Nesjaey og Sandey stinga kryppum sínum upp
úr vatninu og stundum siglir þar bátur. Fólk er
hingað komið til að vera í friði með minningar
sínar og leyndarmál. Kvöldin eru orðin dimm og
erfitt að finna þá sem týnast.
Gerður Kristný
er höfundur á þriðja tugar bóka. Hestvík er
þriðja skáldsaga hennar fyrir fullorðna.
Vöruflokkur
-
Íslenskar bækur, Skáldverk íslensk - innbundin
- Form: Innbundin
- Útgáfuár: 2016
- Útgefandi: Forlagið
- Blaðsíðufjöldi: 163

