Hitt húsið
Verð: | 4.399 ISK |
Vörunúmer: BENE320674
Hvar er varan fáanleg
Penninn Eymundsson
- Austurstræti 18
- Kringlan Suður
- Ísafjörður
- Skólavörðustígur
Höfundur
Vörulýsing
Kona býður frægum listmálara að dvelja í gestahúsi sínu við afskekkta sjávarströnd þar sem hún býr með fjölskyldu sinni. Málverk hans hafa heillað hana mjög og hún ber þá von í brjósti að myndsýn hans geti vitrað henni leyndina sem býr innra með henni. En eftir því sem líður á langt og þurrt sumarið, verður storkandi návist hans henni æ óskiljanlegri og raskar hennar annars friðsælu tilveru.
Þessi nýja skáldsaga Rachel Cusk, Hitt húsið, er magnþrungin rýni í kvenleg örlög og karllæg forréttindi, rýmismörk mannlegra samskipta og hin siðrænu álitaefni sem gefa mannlífinu lit. Hún vekur okkur til umhugsunar um mátt listarinnar til að upptendra og eyða.
Vöruflokkur
-
Íslenskar bækur, Skáldverk þýdd - kiljur
- Form: Kilja
- Útgáfuár: 2022
- Blaðsíðufjöldi: 208