Horfin athygli
| Verð: | 5.999 ISK |
Penninn Eymundsson
- Akranes
- Austurstræti 18
- Kringlan Suður
- Akureyri
- Hallarmúli 4
- Hafnarfjörður
- Húsavík
- Ísafjörður
- Keflavík
- Skólavörðustígur
- Mjódd
- Vestmannaeyjar
- Selfoss
- Smáralind
Höfundur
Vörulýsing
Við vitum þetta öll: Við eigum sífellt erfiðara með einbeitingu og athygli að lesa, læra og sökkva okkur ofan í flókin verkefni. En hver er ástæðan?
Horfin athygli er afrakstur ferðalags sem blaðamaðurinn Johann Hari lagði upp í til að leita svara. Bókin er byggð á fjölda rannsókna og viðtala við sérfræðinga víða um heim sem hann fléttar saman við eigin reynslu í einstaklega læsilegri og áhugaverðri frásögn.
Hér er því lýst hvernig örar breytingar í umhverfinu, ný tækni og græðgi stórfyrirtækja hafa hreinlega rænt okkur hæfileikanum til djúprar, sjálfstæðrar og frumlegrar hugsunar. Og athyglisbresturinn hefur afgerandi áhrif á viðhorf okkar, þekkingu, samskipti og sjálfa samfélagsgerðina, svo mjög að lýðræðið er í hættu.
Þó er ekki öll von úti. En lausnirnar krefjast þess að við íhugum hvernig lífi við viljum lifa og hvernig samfélagi við viljum búa í, og tökum síðan meðvitaðar ákvarðanir um neyslu okkar, tækninotkun og lífsstíl í samræmi við óskir okkar og drauma um gott líf.
Bókin hefur unnið til verðlauna og komið út víða um heim.
Vöruflokkur
-
Íslenskar bækur, Fræði- og handbækur
- Form: Kilja
- Útgáfuár: 2025
- Blaðsíðufjöldi: 368
