Hótel Héðinsfjörður
| Verð: | 8.699 ISK |
Vörunúmer: BJBAB2
Hvar er varan fáanleg
Penninn Eymundsson
- Akranes
- Austurstræti 18
- Kringlan Suður
- Akureyri
- Vestmannaeyjar
- Smáralind
Vörulýsing
Vinkvennahópur er mættur á gönguskíðanámskeið á glænýtt lúxushótel í Héðinsfirði, þar sem annars enginn býr. Hótelið er í eigu einnar úr hópnum, hinnar dularfullu Herdísar Karlsdóttur, uppgangskonu sem hefur auðgast mjög í tæknigeiranum. Fljótlega kemur á daginn að gamlar væringar krauma enn undir og á þriðja degi finnst ein úr hópnum myrt.
Og fyrir utan er glórulaus stórhríð.
Hótel Héðinsfjörður er bæði fyndin og spennandi saga um vináttu, öfund, afbrýði og fortíðardrauga.
Birna Anna Björnsdóttir er þekktust fyrir skáldsöguna Dís, sem hún skrifaði ásamt Silju Hauksdóttur og Oddnýju Sturludóttur, og varð metsölubók og síðar einnig að kvikmynd. Þetta er hennar fimmta bók.
