Hreistur
| Verð: | 3.999 ISK |
Vörunúmer: JPV337997
Höfundur
Vörulýsing
Hreistur eftir Bubba Morthens er áhrifamikill ljóðabálkur um það umhverfi sem mótaði listamanninn Bubba sjávarþorpin, verbúðirnar, fiskinn, kuldann, hörkuna. Í leitinni að upprunanum, því sem mótaði þann Bubba sem allir þekkja, lítur hann til þess tíma þegar hann fór þorp úr þorpi, verbúð úr verbúð, frystihús úr frystihúsi og stritaði, djammaði, stritaði meira. Engin miskunn, þúsund þorskar og þúsund farandverkamenn og konur sem þokuðust nær og nær hyldýpinu?
Hreistur er hörkubók í margvíslegum skilningi: pólitísk, meitluð, sláandi, og Bubbi birtist okkur enn einu sinni sem ótrúlega fjölhæfur, skarpskyggn og heillandi listamaður.
Vöruflokkur
-
Íslenskar bækur, Ljóð og kvæði
- Form: Kilja
- Útgáfuár: 2017
- Útgefandi: Forlagið
- Blaðsíðufjöldi: 70
