Jómsvíkingasaga
| Verð: | 7.499 ISK |
Penninn Eymundsson
- Austurstræti 18
- Hafnarfjörður
- Skólavörðustígur
- Smáralind
Vörulýsing
Jómsvíkinga saga er talin rituð í kringum 1200. Hún segir í upphafi frá elstu Danakonungum sem áreiðanlegar heimildir eru til um, Gormi hinum gamla, konu hans og sonum, en í síðari hluta frá samfélagi víkinga í Jómsborg við Eystrasalt. Sögunni lýkur á herferð Jómsvíkinga til Noregs þar sem þeir mæta Hákoni jarli og Eiríki syni hans í snarpri og tvísýnni orrustu í Hjörungavogi, en bíða ósigur. Frásögnin nær hámarki í lýsingunni á aftökum Jómsvíkinga, sem sýna mikið æðruleysi og hetjuskap og ögra böðlum sínum. Sagan er fyrst og fremst skemmtisaga; höfundur lætur sér staðfræði og sannfræði í léttu rúmi liggja og sýnir konungum og öðrum höfðingjum algert virðingarleysi. Tvær drápur um bardagann í Hjörungavogi fylgja útgáfunni: Jómsvíkingadrápa eftir Bjarna Kolbeinsson Orkneyjabiskup og Búadrápa eftir Þorkel Gíslason. Þá fylgja þessu síðasta bindi konungasagna nokkrir þættir, einkum úr Flateyjarbók, sem hafa ekki áður birst í ritröðinni.
Vöruflokkur
-
Íslenskar bækur, Fræði- og handbækur
- Form: Innbundin
- Útgáfuár: 2019
- Blaðsíðufjöldi: 322
