Kalli á Hrauni
| Verð: | 6.999 ISK |
Penninn Eymundsson
- Austurstræti 18
- Kringlan Suður
- Hafnarfjörður
- Mjódd
- Selfoss
Höfundur
Vörulýsing
Jörðin Hraun í Ölfusi hefur verið í byggð síðan á landnámstíð. Hið minnsta fimm þjóðleiðir fara um hlaðið á Hrauni og því hafa fjölmargir ferðalangar komið þar við, þegið kost og gistingu. Jörðin liggur á mörkum Ölfusfora í austri en sandauðnar í vestri. Hafa þessar andstæður bæði valdið búsifjum en einnig veitt hlunnindum til ábúenda Hrauns í gegnum tíðina.
Í bókinni er fjallað um fjórar kynslóðir sem hafa búið á Hrauni frá miðri nítjándu öld en sama ætt hefur yrkt jörðina síðan árið 1835.
Sagan snýst að mestu um Karl Þorláksson (1915 - 1995) bónda á Hrauni en einnig er brugðið upp skemmtilegum myndum af fjölskyldu, vinum og samferðafólki. Fjallað er um búskaparhætti, menn og málefni á lifandi hátt. Fjölmargar ljósmyndir, kort og teikningar styðja við frásögnina.
Vöruflokkur
-
Íslenskar bækur, Ævisögur - íslenskar
- Form: Innbundin
- Útgáfuár: 2025
- Blaðsíðufjöldi: 328
