Kona í hvarfpunkti
| Verð: | 3.999 ISK |
Penninn Eymundsson
- Austurstræti 18
- Kringlan Suður
- Akureyri
- Hafnarfjörður
- Skólavörðustígur
- Selfoss
Höfundur
Vörulýsing
,,Fjörutíu og fjórum árum eftir að Kona í hvarfpunkti kom fyrst út er slagkraftur bókarinnar enn óumdeildur. Heillandi og óbærileg í senn hún segir hún sögu af ofbeldi og grimmd en einnig af andlegri vakningu.''Maríanna Clara Lúthersdóttir. Úr eftirmála íslenskrar þýðingar Konu í hvarfpunkti. Firdaus hefur verið dæmd til dauða fyrir morð. Hún segir sögu sína nóttina fyrir aftökuna. Egypsk, femínísk klassík sem afhjúpar undirlokun kvenna í samfélögum Austurlanda nær eftir höfund sem hefur verið á dauðalistum íslamskra öfgahópa. Mergjuð skáldsaga. Með eftirmála eftir Maríönnu Clöru Lúthersdóttur. Nawal El Saadaw (f.1931) er egypskur rithöfundur, læknir og baráttukona fyrir mannréttindum. Hún er einn áhrifamesti feminíski hugsuður arabaheimsins, hefur skrifað um stöðu kvenna í íslömskum samfélögum og gagnrýnt feðraveldið, trúarbrögð og kapítalisma fyrir kerfisbundna kúgunkvenna um allan heim. Kona í hvarpunkti, sem byggð er á sannri sögu, fékkst upphaflega ekki útgefin í heimalandi höfundar og kom fyrst út í Líbanon árið 1975. Bókin hefur komið út á 22 tungumálum.
,,Fjörutíu árum síðar er hún alveg jafn fersk, áhrifarík og mikilvæg og daginn sem hún kom fyrst út, '' The Guardian
Vöruflokkur
-
Íslenskar bækur, Skáldverk þýdd - kiljur
- Form: Kilja
- Útgáfuár: 2019
- Útgefandi: Angústúra
- Blaðsíðufjöldi: 180
