Kvæði og laust mál
| Verð: | 8.599 ISK |
Vörunúmer: MOM555
Höfundur
Vörulýsing
Benedikt Einarsson var fæddur árið 1877 að Elínarhöfða á Akranesi. Hann missti báða foreldra sína barnungur en Guðmundur Sveinbjörnsson móðurbróðir hans, bóndi á Valdastöðum í Kjós, og Katrín Jakobsdóttir kona hans fóstruðu hann í stórum barnahópi. Á heimilinu ríkti glaðværð með atorku og lestri góðra bóka þar sem rímur og Íslendingasögur voru hafðar í hávegum. Ungir frændur Benedikts tóku ásamt honum virkan þátt í starfi og hugsjónum ungmennafélagsins Drengs í Kjósinni á fyrstu áratugum 20. aldar. Benedikt var æði oft fenginn til að halda fyrirlestra um hugðarefni sín á vegum ýmissa ungmennafélaga og annarra félaga.
Vöruflokkur
-
Íslenskar bækur, Ljóð og kvæði
- Form: Innbundin
- Útgáfuár: 2026
- Útgefandi: Skrudda
- Blaðsíðufjöldi: 365
- ISBN: 978-9935-520-88-3
