Lífið á efstu hæð
| Verð: | 6.299 ISK |
Penninn Eymundsson
- Akranes
- Akureyri
- Húsavík
- Ísafjörður
- Keflavík
- Smáralind
Höfundur
Vörulýsing
Fyrir hverja:
Þá sem eru að byrja á eftirlaunum
Þá sem eiga stutt í eftirlaun
Þá sem eiga langt í eftirlaun
Á næstu 10 árum munu þrjátíu þúsund Íslend¬ingar láta af störfum og fara á eftirlaun. Eftir 25 ár verða 20% landsmanna á eftirlaunum og eftir miðja öldina verður hlutfallið komið yfir 25%. Lífið á efstu hæð fjallar um eftirlaunasparnað og leiðir til að stuðla að góðum eftirlaunum.
Hvað geta einstaklingar reiknað með að fá í eftirlaun þegar þeir láta af störfum?
Hvað geta þeir gert ef þeir vilja stuðla að hærri eftirlaunum?
Og hvað á að gera þegar taka eftirlauna hefst?
Í bókinni er leitast við að svara þessum spurningum og benda á leiðir til að stuðla að góðum eftir-launum. Meðal annars er sérstök umfjöllun um hálfan lífeyri sem getur hentað einstaklingum sem vilja draga úr vinnu eða vera lengur á vinnumarkaði og þá í allt að hálfu starfi. Í bókinni eru einnig ráð um ávöxtun, erfðamál og varnir gegn tekjumissi vegna veikinda eða slysa.
Bókin er í tveimur hlutum. Í fyrri hluta hennar er samantekt á gagnlegum upplýsingum um eftirlaun, ávöxtun og atriði sem hafa áhrif á fjárhag aðstandenda við fráfall. Í seinni hluta bókarinnar eru kaflar með ráðleggingum til þeirra sem eru að byrja á eftirlaunum eða að safna fyrir eftirlaunum (eiga langt eða stutt í eftirlaun).
Vöruflokkur
-
Íslenskar bækur, Fræði- og handbækur
- Form: Innbundin
- Útgáfuár: 2018
- Útgefandi: Framtíðarsýn
