Lífið er staður þar sem bannað er að lifa – Bók um geðröskun og von
| Verð: | 4.499 ISK |
Vörunúmer: BJ SJE
Hvar er varan fáanleg
Penninn Eymundsson
- Austurstræti 18
- Akureyri
- Skólavörðustígur
- Mjódd
- Selfoss
- Smáralind
Höfundur
Vörulýsing
Eftir þrjátíu ára leit að bata tókst Steindóri Jóhanni Erlingssyni loksins að snúa vörn í sókn í baráttu sinni við ægivald þunglyndis og kvíða. Allan þennan tíma hefur þessi geðröskun fylgt honum sem áleitinn skuggi. Baráttan hefur verið ströng og oft tvísýn. Stundum hefur vonleysið og löngunin til að binda enda á lífið borið hann ofurliði. Í þrígang reyndi hann að ganga alla leið. Einstök bók um mann sem þurfti að ferðast um djúpan dal lungann úr ævi sinni en hefur nú endurheimt lífið. Steindór er doktor í vísindasagnfræði og höfundur einnar bókar, auk fjölmargra fræði- og blaðagreina.
Gyrðir Elíasson segir um bókina Mjög áhugaverð frásögn af þeim innri og ytri hremmingum sem fylgja alvarlegri geðröskun.
Vöruflokkur
-
Íslenskar bækur, Fræði- og handbækur
- Form: Kilja
- Útgáfuár: 2023
- Blaðsíðufjöldi: 217
