Litla bókin um blæðingar
| Verð: | 9.199 ISK |
Penninn Eymundsson
- Austurstræti 18
- Húsavík
Höfundur
Vörulýsing
Úff, að byrja á blæðingum! Að bíða eftir því að byrja á blæðingum! Að vera á blæðingum! Oh, bara þetta blæðingamál allt saman! Ég man alveg hvernig mér leið. Ég var svo stressuð og hrædd en líka svo spennt og forvitin. Mig langaði að vita allt en ég hafði engan að spyrja. Þess vegna erum við hér! Ég vil að þú fáir svör við öllum heimsins spurningum um blæðingar. Svo vertu velkomin, elsku TÚRVERA, í túrbók drauma minna, bókina sem Ég hefði svo óskað að væri til þegar ég var barn og unglingur.
Bókin skiptist í sex kafla sem fjalla um jafnmörg málefni. Í hverjum kafla ræðum við algengar mýtur, ég deili með ykkur reynslusögum frá túrverum, veiti hagnýt ráð og svara spurningum um blæðingar sem ég hef fengið í kynfræðslu um allt land. Blæðingar eru ekkert til að óttast eða kvíða fyrir. Og alls ekkert til að skammast sín fyrir. Þær bara eru það sem þær eru, hvorki meira né minna.
Vöruflokkur
-
Íslenskar bækur, Fræði- og handbækur
- Form: Innbundin
- Útgáfuár: 2022
