Ljúflingar Prjónað úr sögum Astrid Lindgren
| Verð: | 7.999 ISK |
Penninn Eymundsson
- Akranes
- Austurstræti 18
- Kringlan Suður
- Akureyri
- Hallarmúli 4
- Hafnarfjörður
- Húsavík
- Ísafjörður
- Keflavík
- Skólavörðustígur
- Mjódd
- Vestmannaeyjar
- Selfoss
- Smáralind
Vörulýsing
Í þessari fallegu prjónabók eru 46 uppskriftir, bæði fyrir börn og fullorðna. Hvern dreymir ekki um derhúfuna og peysurnar hans Emils eða Kattholtskjólinn og svuntuna hennar Ídu? Línupeysan er í stærðum fyrir börn og fullorðna og vetrarpeysur Tomma og Önnu eru litríkar og fallegar. Hér er líka að finna uppskrift að herra Níelsi, apanum hennar Línu, og sæta og mjúka grísbirninum hennar Lottu en sjálf fær hún doppóttan kjól. Stemningin á Saltkráku, litlu eyjunni í sænska skerjagarðinum, skilar sér meðal annars í rúllukragapeysu Skottu og samfestingnum hennar Skrollu. Ef hugurinn leitar í ennþá meiri ævintýri þá eru uppskriftir bæði að peysum bræðranna Ljónshjarta sem og hettukraga og skjóðu Ronju ræningjadóttur.
Hanne Andreassen Hjelmås og Torunn Steinsland eru hönnuðir KlompeLOMPE og hafa þær gefið út fjölmargar vinsælar prjónabækur sem njóta mikilla vinsælda í Noregi og víðar. Áður hafa komið út á íslensku prjónabækurnar Ljúflingar prjónað á stóra og smáa, Ljúflingar prjónað fyrir útivistina og Ljúflingar uppáhaldsföt á yngstu börnin. Ásdís Sigurgestsdóttir og Guðrún B. Þórsdóttir þýddu.
