Núna
| Verð: | 4.999 ISK |
Höfundur
Vörulýsing
Ljóð okkar, þau eru líðan okkar hverju sinni,
og
hafa sér til afbötunar að hugsanlega finni
aðrir
fyrir einhverju svipuðu um líkt leyti.
Lækir
streymdu án afláts þótt á vegi þeirra yrðu
vöð
og flúðir. Við fórum ung að dæmi þeirra.
Og
höldum uppteknum hætti. Eins þótt okkur
gruni
að sumra lækjanna sjái nú lítil merki.
Þorsteinn
frá Hamri (f. 1938) er meðal fremstu ljóðskálda
sem ort hafa á íslenska tungu en fyrsta ljóðabók
hans kom út 1958. Hann hefur hlotið margvíslegar
viðurkenningar fyrir skáldskap sinn, meðal
annars Stílverðlaun Þórbergs Þórðarsonar 1991 og
Íslensku bókmenntaverðlaunin 1992 fyrir
ljóðabókina Sæfarinn sofandi. Þá var hann
tilnefndur til Íslensku bókmenntaverðlaunanna
1995 fyrir Það talar í trjánum og 1999 fyrir
Meðan þú vaktir. Þorsteinn fékk Ljóðaverðlaun
Guðmundar Böðvarssonar 2004 og Verðlaun Jónasar
Hallgrímssonar á degi íslenskrar tungu árið 2009.
Vöruflokkur
-
Íslenskar bækur, Ljóð og kvæði
- Form: Innbundin
- Útgáfuár: 2016
- Útgefandi: Forlagið
